Blog Layout

Aðalfundur og málþing landsamtakanna Spítalinn okkar 23.apríl 2024

thorkellsig@gmail.com

Aðalfundur landsamtakanna Spítalinn okkar var haldinn á Nauthól 23.apríl 2024. Hlotnaðist sá heiður að vera kjörinn formaður samtakanna en Anna Stefánsdóttir gaf ekki kost á sér eftir 10 ára starf.


Að afloknum aðalfundi var haldið málþing í tilefni af 10 ára afmæli Spítalans okkar þar sem erindi fluttu Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, Jón Hilmar Friðriksson, forstöðumaður hjá Landspítala og Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóra Nýja Landspítala (NLSH) sem sér um uppbyggingu nýbygginga og breytinga eldra húsnæðis. 

  Áttum góðann aðalfund hjá landsamtökunum Spítalanum okkar þann 23.apríl 2024 á 10 ára afmæli samtakanna. Talsvert miklar breytingar urðu á stjórn. Fyrst skal nefna að Anna Stefánsdóttir gaf ekki kost á sér, en hún hefur verið formaður frá stofnun Spítalans okkar árið 2014. Þær Guðrún Ágústsdóttir og Anna Lilja Gunnarsdóttir gáfu heldur ekki kost á sér.  Í þeirra stað voru kjörnar þær Anna Sigrún Baldursdóttir, skrifstofustjóri öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg,  Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og Maria Heimisdóttir, starfsmaður hjá heilbrigðisráðuneytinu, en nú forstöðumaður hjá stýrihóp Nýja Landspítala ohf. og tengiliður ráðuneytisins við  stýrihóp Nýja Landspítala ohf. (NLSH ohf.)  https://www.stjornarradid.is/raduneyti/nefndir/nanar-um-nefnd/?itemid=d821c013-e87e-11ea-811d-005056bc8c60 . Allar tengjast þær því velferðarmálum mjög náið. Áfram eru í stjórn Erling Ásgeirsson f.v. formaður NLSH, Gunnlaug Ottesen, tölvunarfræðingur, Jón Ólafur Ólafsson, arkitekt og Þorkell Sigurlaugsson, viðskiptafræðingur og varaborgarfulltrúi í Reykjavík.


   Mér hlotnaðist sá heiður að vera kjörinn formaður í stað Önnu, en ég hef verið í stjórn samtakanna Spítalinn okkar frá stofnun sem varaformaður. Fyrir hönd stjórnarinnar þakkaði ég Önnu fyrir einstaklega öfluga baráttu fyrir uppbyggingu fyrsta áfanga Nýja Landspítala á árunum 2014-2018 þegar mikil óvissa var upp tímasetningar og fjármögnun framkvæmda.  Samstarf okkar við Önnu var afar ánægjulegt og hún hefur skráð sig á spjöld sögunnar sem ein þeirra nokkurra kvenna sem hafa átt sinn þátt í uppbyggingu spítalabygginga og spítalastarfsemi í meira en 100 ár.


   Samþykktar voru breytingar á lögum samtakanna þar sem hlutverkið var víkkað út og nær til samstarfsaðila sem tengjast bæði aðflæði og fráflæði Landspítala, aðbúnaði starfsmanna og sjúklinga og þeim mönnunarvanda sem er viðvarandi. Munum því leggja auka áherslu á þessa þætti auk áframhaldandi mikilvægi sjúkrahúsbygginga og endurnýjun eldri bygginga. 


   Að loknum aðalfundi var haldið afar fjölmenn málþing sem fyllti salinn á Nauthól þar sem Runólfur Pálsson, forstjóri LSH, Jón Hilmar Friðriksson, forstöðumaður hjá LSH og Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýja Landspítala (NLSH) fluttu afskaplega fróðleg erindi sem gáfu svo sannarlega innsýn í þau krefjandi verkefni sem framundan eru næstu 5 árin og reyndar lengra inn í framtíðina. 

Nokkrar myndir frá aðalfundi og málþinginu hér að neðan.

Deila

Share

Share by: