Blog Layout

Sigurður Ágúst Sigurðsson var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis

thorkellsig@gmail.com

Sigurður Ágúst var í dag kosinn formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis (FEB) á aðalfundi félagsins með rúmlega 60 prósent atkvæða

Fjórir voru í framboði til formanns og voru úrslitin eftirfarandi:


·      Sigurður Ágúst Sigurðsson hlaut 215 atkvæði

·      Sigurbjörg Gísladóttir hlaut 130 atkvæði

·      Borgþór Kjærnested hlaut 6 atkvæði

·      Sverrir Örn Kaaber hlaut 3 atkvæði

·      Ógildir 2 atkvæði


Samtals kusu 356 í formannskjörinu.


Í stjórn og varastjórn voru r eftirfarandi kjörin.


Til tveggja ára í aðalstjórn voru kjörin:

·      Guðrún Ósk Jakobsdóttir hlaut 290 atkvæði

·      Elinóra Inga Sigurðardóttir hlaut 284 atkvæði

·      Kristinn Eiríksson hlaut 276 atkvæði


Þrír voru kosnir í varastjórn til eins árs en þau eru:


·      Ragnar Árnason hlaut 229 atkvæði

·      Bessí Jóhannsdóttir hlaut 215 atkvæði

·      Jón Magnússon hlaut 197 atkvæði


Samtals kusu 340 í stjórnarkjörinu.


Neyðarástand bitnar á eldra fólki

Þegar úrslitin lágu fyrir sagði Sigurður Ágústsson, nýkjörinn formaður; „Ég þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem framboð mitt hlaut á fundinum í dag. Eins og ég benti á í ræðu minni í dag að þá eru sextán þúsund félagsmenn í félaginu sem eru rúmlega þriðjungur allra eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu. Þessi fjöldi félagsmanna minnir á samtakamáttinn sem við eigum hiklaust að beita í þeirri baráttu sem fram undan er og það munum við gera fyrir bættum lífsgæðum eldra fólks“

Þá er haft eftir honum í framboðsræðu í dag að skortur á hjúkrunarheimilum væri orðinn að neyðarástandi sem bitnaði af sífellt meiri þunga á eldra fólki og sjúkrahúsum.

„Fyrir fundinum liggur ályktun vegna þessa ástands, en nú bíða 243 einstaklinga eftir því að fá úthlutuðu plássi. Hér þarf því að bregðast við án tafar, af festu og áræði.“


Var forstjóri Happdrættis DAS í 33 ár

Sigurður Ágúst lét nýverið af störfum sem forstjóri Happdrættis DAS, en hann gegndi því starfi í 33 ár og sat stjórnarfundi Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins. Áður starfaði hann sem aðalbókari Hrafnistuheimilanna og sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði Reykjavíkur (nú SHS).

Þá situr Sigurður í stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða en hann hefur enn fremur víðtæka reynslu af stjórnar- og nefndarstörfum. Jafnframt hefur hann setið í fjölda nefnda á vegum dómsmálaráðuneytisins vegna starfa sinna fyrir happdrætti DAS.


Sigurður er fæddur árið 1953 og ólst upp í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Hann er kvæntur Guðrúnu B. Björnsdóttur læknaritara og eiga þau þrjár dætur og fjögur barnabörn. Sigurður útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands og er með próf frá Háskólanum í Reykjavík í fjármálum og rekstri.


Deila

Share

Share by: